Borði
Rooney Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda tölvupóst

Wayne_RooneyblueWayne Mark Rooney er fæddur 24. október 1985, í Liverpool Englandi.

 

 

 

 

 

Hann spilar þessa dagana fyrir Manchester United og landsliði Englands. Hjá Manchester klæðist hann treyju nr 8 og nr 9 hjá landsliðinu.

 

Hann er alinn upp í austur Liverpool sem kallast Croxteth, þar sem hann og bræður hans gengu í kaþólskan skóla er nefnist De La Salle Catholic School. Á hans yngri árum hélt hann með Everton og hefur það verið milli tannanna á fólki þegar hann klæddist einhvern tíma bol sem á stóð ,,Once a blue, always a blue". Samt sem áður spilaði hann aðeins 2 ár fyrir Everton áður en hann krafðist skipta. Þetta gerði ekki mikla lukku hjá stuðningsmönnum Everton sem sýndi sig og sannaði þegar hann sneri aftur á Goodison Park og áhorfendur púuðu í sífellu á hann.

Þó hann hafi verið undir smásjá fjölmiðla síðan 2002 var það ekki fyrr en eftir frammistöðu hans í Evrópukeppninni árið 2004 að hann öðlaðist verðskuldaða virðingu fjölmiðlanna. Það var einmitt þá sem hann átti 4 glæsileg mörk og var fremstur í sókn Englands. Honum hefur oft verið líkt við hetjur eins og George Best og Paul Gascoigne þegar talað er um hæfileika og dugnað.

Rooney stóð sig frábærlega hjá Liverpool Schoolboys og The Dynamo Brownwings til 11 ára aldurs, en þá var honum boðið að ganga til liðs við Everton sem hann og þáði. Hann sló met þann 19. október árið 2002 þegar hann varð sá yngsti í deildinni sem hafði skorað mark í leik, 16 ára og 360 daga gamall, þá með Everton. Það met hefur svo verið slegið tvisvar síðan þá. Markið var á síðustu mínútu gegn Arsenal, sem þá var á toppi deildarinnar, og vann leikinn fyrir Everton en þessi leikur batt einmitt enda á 30 leikja tap í röð gegn því liði.thumb_wayne_rooney_goal

Hann var sá yngsi sem hafði spilað með landsliði Englendinga í vináttuleik gegn Ástralíu þann 12. febrúar árið 2003, 17 ára og 111 daga gamall. Það met hefur síðan verið slegið af Theo Walcott, sem kom af bekknum í vináttuleik gegn Ungverjalandi þann 30. maí árið 2006. Sá yngsti sem hafði spilað með landsliðinu áður en Rooney sló metið var James F.M. Prinsep sem spilaði sinn fyrstaleik þann 5. apríl árið 1879,  yfir hundrað árum áður en þá var hann 17 ára og 253 daga gamall. Wayne Rooney er enn þann dag í dag sá yngsti sem hefur skorað mark í landsleik fyrir England, 17 ára og 317 daga.

Orðspor hans sem einn af efnilegustu ungu leikmönnum deildarinnar hefur lengi loðað við hann og kom það bersýnilega í ljós hversu öflugur leikmaður hann var, og er, þegar hann spilaði í Evrópukeppninni 2004 í Portúgal. Á því móti varð  hann sá yngsti sem nokkurn tíma hafði skorað á UEFA móti þegar hann skoraði 2 mörk gegn Sviss, þann 17. júní, en Johan Vonlanthen, frá Sviss, sló metið 4 dögum síðar á sama móti í leik gegn Frökkum.

Fyrir heimsmeistaramótið 2006 voru þónokkrir sem höfðu áhyggjur af heilsu  kappans þar sem bein í framrist hans var brotið í hægri fæti. Svona brot geta verið þrálát og sérstaklega fyrir knattspyrnumenn þar sem þau eiga það til að gróa hægt ef ekki er farið hægt í sakirnar. Myndataka þann 25. mai 2006 leiddi í ljós að líklegast næði hann ekki að jafna sig í tæka tíð fyrir mótið. Síðar átti hann að fara í aðra myndatöku þann 7. júní sama ár til að sjá hvort batinn væri nægur. Að eigin sögn sagðist Rooney vera klár í slaginn og var farinn að æfa með liðinu í léttum spörkum og sprettum þann 2. júní. Þegar svo loks kom að myndatökunni sagðist hann vera 300% viss um að hann yrði góður og allt leit út fyrir að hann gæti náð settu markmiði. Þann 15. júní sendu Sven-Göran Eriksson og FA læknar út yfirlýsingu þess efnis að Wayne Rooney yrði orðinn nógu góður og að allt liti stórkostlega út fyrir leikinn gegn Trinidad. En þó voru efasemdaraddir um að hann væri í raun orðinn nógu góður til að spila og hvort það væri nokkuð sniðugt að láta hann spila, þar sem hann gæti hugsanlega ekki verið í 100% formi.

Á 58. mínútu leiksins skipti hann við Michael Owen og var þá orðrómurinn niður kveðinn. Áhangendur unga snillingsins voru spenntir fyrir því að sjá drenginn spila og hvort hann gæti sprett almennilega úr spori. Þó svo hann skoraði ekki mark í leiknum stóð hann sig vel og gerði vel vart við sig í sókninni. Þann 18. júní tilkynnti Sven-Göran að Rooney myndi byrja inná vellinum í næsta leik landsliðsins. Manchester United liðið var ekki sátt við þessa ákvörðun þar sem það gæti haft áhrif á bata kappans og þar af leiðandi árangur hans með liðinu seinna um árið. 20. júní byrjaði Rooney inná og gerði sitt í jafntefli gegn Svíum, 2-2 og þann 25. júní spilaði hann gegn Ekvador og lék af snilli þó svo að hann hafi ekki sett mark í leiknum.

wayne-rooneyredÞann 1. júlí var Rooney sendur út af vellinum þegar lið Englands lék gegn Portúgölum. Rooney lenti í smá ryskingum við Ricardo Carvalho er þeir slógust um boltann. Rooney átti að hafa stigið á nárann á Portúgalanum og var í kjölfarið sendur í sturtu. Seinna tilkynnti Rooney að atvikið umrædda hafi verið algert óviljaverk. Þetta atvik gerði hann að þriðja Englendingnum til að vera sendur út af vellinum í úrslitum heimsmeistarakeppninnar. Þetta atvik varð til þess að hann missti af opnunarleikjum á Evrópumótinu 2008 gegn Andorra og Macedoníu 2. og 6. september.

Síðast uppfært: Sunnudagur, 21. mars 2010 20:54
 
Borði
  • Meðlimi
  • Myndir
Hannes Jóhannsson
Hannes Jóhannsson
Last online: Aldrei
21
Friðþór Jakobsson
Friðþór Jakobsson
Last online: Aldrei
131
Daði Örn Jensson
Daði Örn Jensson
Last online: 2010-04-24 03:23
166
Björn Valur Ellertsson
Björn Valur Ellertsson
Last online: Aldrei
154
Hildiþór Jónasson
Hildiþór Jónasson
Last online: Aldrei
153
Adam E
Adam E
Last online: 2010-03-26 05:02
170
Páll Ásgrímur Jónsson
Páll Ásgrímur Jónsson
Last online: 2010-03-22 03:45
164
Björn Ágúst Júlíusson
Björn Ágúst Júlíusson
Last online: 2010-03-11 02:46
151
Gísli Guðmundsson
Gísli Guðmundsson
Last online: 2010-03-05 12:27
209
Davið Smári
Davið Smári
Last online: 2010-03-23 07:46
256
Trond Eiksund
Trond Eiksund
Last online: 2010-08-11 06:27
419
« 1 2 3 »
Daði Örn Jensson
Daði Örn Jensson
Last online: 2010-04-24 03:23
166
Trond Eiksund
Trond Eiksund
Last online: 2010-08-11 06:27
419
Davið Smári
Davið Smári
Last online: 2010-03-23 07:46
256
Gísli Guðmundsson
Gísli Guðmundsson
Last online: 2010-03-05 12:27
209
Adam E
Adam E
Last online: 2010-03-26 05:02
170
Daði Örn Jensson
Daði Örn Jensson
Last online: 2010-04-24 03:23
166
Páll Ásgrímur Jónsson
Páll Ásgrímur Jónsson
Last online: 2010-03-22 03:45
164
Björn Valur Ellertsson
Björn Valur Ellertsson
Last online: Aldrei
154
Hildiþór Jónasson
Hildiþór Jónasson
Last online: Aldrei
153
Björn Ágúst Júlíusson
Björn Ágúst Júlíusson
Last online: 2010-03-11 02:46
151
Friðþór Jakobsson
Friðþór Jakobsson
Last online: Aldrei
131
Hannes Jóhannsson
Hannes Jóhannsson
Last online: Aldrei
21
« 1 2 3 »
Newest
Active
Popular
Engin virkar hópar.
Tölfræði
Meðlimir
: 11
Hópar
: 3
Umræður
: 0
Myndaalbúm
: 0
Myndir
: 0
Myndbönd
: 1
Tilkynningar
: 0
Aðgerðir
: 1
Krot á skólatöflu
: 11