top of page

Arne Slot orðinn uppgefinn – „Ég get ekki knúsað Salah í hvert skipti sem hann grætur“

  • Writer: G Hinriksson
    G Hinriksson
  • Nov 13
  • 2 min read
ree

Samkvæmt heimildum er Arne Slot, þjálfari Liverpool, farinn að hugleiða að segja starfi sínu lausu – ekki vegna leikmannahópsins eða úrslitanna sem slíkra, heldur vegna „óþarflega mikils knúskúltúrs“ innan félagsins.


Slot, sem tók við af Jürgen Klopp í fyrrasumar, hefur samkvæmt sögusögnum sagt að hann sé „andlega örmagna“ eftir að hafa þurft að hugga leikmennina eftir hvern tapleik – sérstaklega þá sem „taka hlutina mjög persónulega“.


„Ég er þjálfari, ekki sálfræðingur“


Í viðtali sem aldrei átti sér stað – en gæti hafa átt sér stað – á Slot að hafa sagt:

„Ég hélt ég væri að taka við fótboltaliði, en þetta er eins og að vinna á tilfinninganámsskeiði. Ég get ekki knúsað Salah í hvert skipti sem hann grætur yfir VAR.“
ree

Þjálfarinn er sagður hafa sett upp sérstakan „huggaðu mig fund“ á mánudögum þar sem leikmenn fá kakó, mjúka púða til að sitja á eða halda utan um, og playlistann ‘You'll Never Walk Alone – Lo-Fi Edition’.


Henderson vill snúa aftur sem „huggunarstjóri“


Samkvæmt breskum slúðurrásum hefur Jordan Henderson lýst yfir áhuga á að snúa aftur til Liverpool – ekki sem leikmaður, heldur sem „emotional support coach“.Hlutverkið myndi felast í því að „knúsa mennina eftir tapið og minna þá á að þeir séu hetjur, sama hvað markatalan segir.“

„Ég sakna Feyenoord – þar grét enginn“


Slot er sagður sakna einfaldari tíma í Hollandi.

„Í Rotterdam tapaðir þú leik, fékkst hollenska pylsu og fórst heim. Hér þarf ég að skrifa tilfinningalega framvinduáætlun fyrir leikmenn,“ á hann að hafa sagt í trúnaði.

Framtíð hans á Anfield er því óljós – en stuðningsmenn vonast til að hann haldi áfram, ef ekki sem þjálfari, þá sem föðurímynd fyrir hóp sem greinilega þarf reglulegan tilfinningastuðning.


 
 
 

Comments

Rated 0 out of 5 stars.
No ratings yet

Add a rating
bottom of page