Quansah aftur til Liverpool?
7 days ago
1 min read
Updated: 5 days ago
Trúverðugleiki: ★★☆☆☆ – 2/5
Liverpool er sagt fylgjast með stöðu Jarell Quansah hjá Bayer Leverkusen, en varnarmaðurinn yfirgaf Anfield sumarið 2025.
Liverpool hefur endurkaupsákvæði í samningi hans, sem félagið gæti nýtt sumarið 2027. Chelsea og Arsenal hafa einnig verið nefnd til sögunnar.
Af hverju aðeins 2/5?
Endurkaupaákvæðið gerir félagaskiptin möguleg, en samkvæmt frétt Football Insider frá 6. október er endurkoma Quansah ekki á dagskrá Liverpool eins og staðan er núna. Það er því talsverður munur á því að félag fylgist með leikmanni og að félagaskipti séu raunverulega í undirbúningi.
Heimildir: Football Insider (6. október 2026), talkSPORT (7. október 2026).
.png)



Comments