Stuðningsmaðurinn - Rauður þar til ég dey!

Skoðanir sem birtast í pistlum undir „Stuðningsmaðurinn“ eru alfarið á ábyrgð höfunda þeirra og endurspegla ekki endilega skoðanir eða afstöðu Enskiboltinn.is. Ritstjórnin áskilur sér rétt til að yfirfara og hafna aðsendu efni.
Pabbi tók enga áhættu!
Ég hef verið stuðningsmaður Manchester United síðan ég man eftir mér. Við erum fjórir bræður. Pabba, Dagbjarti Einarssyni, fyrrverandi útgerðarmanni í Fiskanesi í Grindavík, hafði mistekist uppeldið á þeim næstelsta, sem valdi Leeds. Sá fyrir ofan mig daðraði svo við WBA og gamla leist ekkert á blikuna. Hann keypti United-treyjur, sokka o.fl. handa okkur yngstu bræðrunum og þar með var okkur borgið!
Þetta var brekka í byrjun, það verður að segjast eins og er. FA-bikarsigrarnir eru þó eftirminnilegir, fyrst gegn Brighton 1983 eftir aukaleik og svo gegn Everton 1985, manni færri! Allt stefndi í Englandsmeistaratitilinn tímabilið 1985–86. Við unnum fyrstu tíu leikina í deildinni og stungum af! „Síðan ekki sögunnar meir,“ eins og Stuðmenn sungu.
Frá Big Ron til Fergie
Næsta tímabil, 1986–87, var „Big Ron“ Atkinson látinn taka pokann sinn og Skotinn Alex Ferguson tók við. Oft hefur maður hugsað til baka, nú þegar hver stjórinn á fætur öðrum hefur verið látinn fara eftir mislangan tíma. Ef sömu vinnubrögð hefðu gilt þá og nú hefði Fergie væntanlega fengið reisupassann!
Gengið var brösótt, svo ekki sé fastara að orði kveðið, og fyrsti titillinn kom ekki í hús fyrr en árið 1990, fyrrnefndur FA-bikar. Gróa á Leiti vill meina að ef sá bikar hefði ekki unnist hefði sá skoski fengið sparkið. Þeir sem stjórnuðu félaginu, meðal annars Sir Bobby Charlton og stjórnarformaðurinn Martin Edwards, þrættu hins vegar fyrir það. Þeir bentu á að Ferguson hefði strax hafist handa við nauðsynlegar lagfæringar. Hann losaði sig við fyllibyttur, bætti unglingastarfið o.s.frv. Stjórnin sá einfaldlega að það væri ekki spurning um hvort, heldur hvenær United kæmist aftur á toppinn.
Við komumst nálægt tímabilið 1991–92 en Leeds, með Eric nokkurn Cantona innanborðs, tók fram úr okkur á lokasprettinum. Þvílík vonbrigði! Ég gleymi aldrei þegar Eiríkur bróðir, Leeds-arinn, steig trylltan stríðsdans af fögnuði. Ég sagði við Gauta bróður: „Djöfull öfunda ég hann!“
Fyrirheitna landið
Ef Leeds hefði ekki falast eftir bakverðinum okkar, Denis Irwin, í nóvember 1992 er ekkert víst að við hefðum keypt Cantona. En allir vita eftirleikinn. Þeim stóra var landað í maí 1993, eftir 26 ára eyðimerkurgöngu! Það var áttundi Englandsmeistaratitill United og áður en Fergie hætti hafði hann tekið fram úr Liverpool. Hann vann sjálfur þrettán Englandsmeistaratitla og United var komið með tuttugu.
Þvílík gleði sem þetta var og minningarnar stórkostlegar. Þrennan 1999 ber auðvitað hæst!
Þótt ekki hafi borið mikið á því í fyrstu, þegar hin illræmda Glazer-fjölskylda yfirtók félagið árið 2005, er ég sannfærður um að þar hafi byrjað að molna undan Manchester United. Af því að við vorum með Fergie, sem gat styrkt liðið með góðum kaupum og náð því besta út úr leikmönnum sínum, hélt lestin áfram. En um leið og hann fór hægðist á henni og að lokum stöðvaðist hún!
Ég held að við höfum gert mistök með því að láta karlinn ekki taka eitt tímabil í viðbót og ráða David Moyes honum til aðstoðar. Moyes hefði þá fengið tækifæri til að komast inn í hlutina og áttað sig betur á stærð klúbbsins. Frá fyrstu mínútu virtist starfið honum hins vegar ofviða. Síðan hefur hver stjórinn á fætur öðrum reynt sig og ekkert breytist! Við erum á okkar fjórtánda tímabili án Englandsmeistaratitils og ljóst að eitthvað mikið þarf að gerast ef við ætlum ekki að bæta fyrra metið, 26 ára eyðimerkurgönguna. (Metið er 41 ár. 1911 - 1952)
Hvað er til ráða?
„Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör“ á einstaklega vel við hér, held ég! En algjör hugarfarsbreyting hlýtur að þurfa að eiga sér stað. Mikið er rætt um ömurlegt eignarhald Kananna, en mörg önnur lið eru í eigu Bandaríkjamanna. Arsenal og Liverpool eru bestu dæmin. Ég batt vonir við Íslandsvininn Sir Jim Ratcliffe og INEOS-gengið. Ekki hefur það skilað miklu!
Ég set stór spurningarmerki við yfirmann knattspyrnumála, Jason Wilcox, og forstjórann, Omar Berrada. Wilcox hafði áður stýrt knattspyrnumálum hjá Southampton í aðeins níu mánuði, eftir að hafa verið yfirmaður unglingastarfs Manchester City. Er sú reynsla nægileg til að stýra knattspyrnumálum hjá einu stærsta knattspyrnufélagi heims?
Tvímenningarnir virðast vera í náðinni hjá Ratcliffe og Glazer-fjölskyldunni og verða tæplega reknir á undan Michael Carrick. Ég er meira að segja farinn að halda að Argentínumaðurinn Lisandro Martínez verði látinn fara áður en tvímenningarnir þurfa að taka pokann sinn! Við virðumst vera í afar slæmum málum!
Liverpool þurfti að bíða í löööööng 30 ár eftir Englandsmeistaratitlinum. Við erum ekki einu sinni hálfnaðir í okkar eyðimerkurgöngu, miðað við núverandi stöðu! Samt skal maður alltaf mæta jafn eftirvæntingarfullur fyrir framan imbann. Og þegar nýtt tímabil hefst kviknar vonin enn á ný. Maður getur skipt um maka, en það er ekki hægt að skipta um lið í enska boltanum!
Come on you REDS!
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson, stuðningsmaður Manchester United
.png)


Comments