top of page
.png)
Um síðuna
Það sem skiptir máli. Ekki allt hitt.
Enskiboltinn.is er íslenskur vefur fyrir áhugafólk um enska knattspyrnu. Hér er markmiðið ekki að birta sem flestar fréttir, heldur að velja það sem er áhugavert, mikilvægt og þess virði að lesa.
Við fjöllum um fréttir, orðróma, greiningar og sögur úr enska boltanum. Ekki aðeins úr úrvalsdeildinni, heldur líka úr neðri deildunum þar sem leynast oft ótrúlegar sögur.
Við viljum skoða hlutina frá öðrum sjónarhornum, draga fram það sem fær litla athygli og segja sögur sem annars gætu gleymst.
Heimildir skipta okkur máli. Við leggjum áherslu á að greina á milli staðreynda, orðróma og skoðana.
Enskiboltinn.is er fyrir þá sem vilja meira en fyrirsagnirnar.
bottom of page