top of page

36 ár í sömu deild – félagið sem virtist aldrei komast neitt

Writer: G Hinriksson
G Hinriksson
Nov 1
2 min read

Á meðan önnur ensk knattspyrnufélög fögnuðu uppgangi eða grétu yfir falli hélt Rochdale sig á sama stað. Í 36 tímabil samfleytt lék félagið í fjórðu efstu deild Englands. Svo lengi að deildin fékk meira að segja viðurnefnið „Rochdale-deildin“.


Sagan hófst árið 1974 þegar Rochdale féll úr þriðju deild. Enginn gat þá ímyndað sér hversu löng biðin eftir næsta uppgangi yrði. Árin liðu. Knattspyrnustjórar komu og fóru, leikmenn fæddust og luku ferlinum og enska deildakerfið tók breytingum. En Rochdale var alltaf á sínum stað. Félagið komst hvorki upp né niður um deild í 36 tímabil samfleytt, frá 1974 til 2010.


Deildin fékk nafn félagsins

Svo lengi sat Rochdale í neðstu atvinnumannadeildinni að stuðningsmenn annarra liða fóru að kalla hana „The Rochdale Division“. Það var auðvitað gert í háðungarskyni.


Árið 2002 komst Rochdale í umspilið um sæti í þriðju deild, en draumurinn dó í undanúrslitum. Árið 2008 komst félagið alla leið á Wembley, þar sem Stockport County vann úrslitaleikinn 3–2. Árið eftir fór liðið aftur í umspil, en tapaði fyrir Gillingham. Það virtist einfaldlega ekki eiga að takast.


Loksins kom dagurinn

Þann 17. apríl 2010, undir stjórn Keith Hill, gerðist það sem stuðningsmenn höfðu beðið eftir í nær fjóra áratugi. Rochdale vann Northampton Town 1–0 og tryggði sér sæti í League One. Eftir 36 ár var félagið loksins komið upp um deild. Stuðningsmenn tóku því með húmor og sungu að nú þyrfti að finna nýtt nafn á deildina þeirra.


Það var kannski ekki stærsti sigur í sögu enskrar knattspyrnu. En fyrir kynslóðir stuðningsmanna Rochdale var hann ómetanlegur. Í 36 ár höfðu þeir horft á önnur félög fara upp og niður. Loksins var komið að þeim sjálfum að færa sig um set.


Heimildir


Mynd AI

Comments


bottom of page