top of page

Félagið sem missti bæði heimavöllinn og réttinn til eigin nafns

Writer: G Hinriksson
G Hinriksson
Nov 3
2 min read

Í mars 2018 gerðist nokkuð í enskri knattspyrnu sem hljómar nánast eins og uppspuni. Dulwich Hamlet, 125 ára gamalt knattspyrnufélag í Suður-London, var rekið af eigin heimavelli. Daginn eftir barst félaginu lögfræðibréf þar sem því var bannað að nota sitt eigið nafn.


Dulwich Hamlet hafði leikið á Champion Hill um áratugaskeið. Völlurinn var hjarta félagsins og mikilvægur samkomustaður í nærsamfélaginu. En árið 2018 stóð framtíðin á brauðfótum.

Fasteignafjárfestingafélagið Meadow Partners, sem hafði eignast völlinn árið 2014, vildi byggja íbúðir á svæðinu.


Áætlanirnar lentu í deilum við sveitarstjórn Southwark og sambandið við knattspyrnufélagið versnaði hratt. Þann 5. mars var Dulwich Hamlet meinað að leika áfram á Champion Hill. Daginn eftir varð málið enn ótrúlegra.


Þið megið ekki lengur heita Dulwich Hamlet!

Félagið fékk lögfræðibréf frá fyrirtæki tengdu Meadow. Þar kom fram að vörumerkin „Dulwich Hamlet Football Club“, „The Hamlet“ og „DHFC“ hefðu verið skráð og að félagið mætti ekki lengur nota þau.


Knattspyrnufélag sem hafði verið stofnað árið 1893 átti þannig á hættu að missa réttinn til að nota nafnið sem það hafði borið í 125 ár. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Stuðningsmenn mótmæltu, lögfræðingar buðu fram aðstoð og málið vakti athygli víða um England. Meadow dró fljótlega kröfuna um bann við notkun nafnsins til baka og vörumerkjaréttindin voru síðar færð til stuðningsmannasamtakanna.


Átta mánuðir í útlegð

Vandinn með heimavöllinn var þó óleystur. Dulwich þurfti að leika heimaleiki sína á Imperial Fields, velli keppinautanna Tooting & Mitcham United. Þrátt fyrir óvissuna náði liðið að vinna sig upp í National League South, sjöttu efstu deild Englands. Á meðan börðust stuðningsmenn, sveitarstjórnarmenn og fleiri fyrir því að félagið fengi að snúa aftur heim.


Í október 2018 náðist loks samkomulag við Meadow Partners og sveitarstjórnina. Dulwich Hamlet fékk aftur aðgang að Champion Hill. Þann 26. desember sama ár sneri félagið aftur heim í deildarleik gegn Eastbourne Borough. Dulwich Hamlet hafði verið rekið af vellinum sínum og næstum svipt nafninu. En það tókst aldrei að taka félagið frá stuðningsmönnunum.

Þeir höfðu barist fyrir hvoru tveggja og unnið.


Heimildir


Mynd AI

Comments


bottom of page